Wireless Loopset LPS 5 - 4. Upplýsingar um rafhlöðu

background image

4. Upplýsingar um rafhlöðu

og hleðslutæki

Þetta tæki er með innbyggða, fasta, endurhlaðanlega rafhlöðu. Ekki reyna að
fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu þar sem það getur skemmt tækið. Tækið er ætlað til
notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi hleðslutækjum: AC-8 og DC-9.
Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni sem er notuð. Gerð
klónnar er auðkennt af einu af eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A, C eða UB. Hægt er að
hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur
úr sér. Aðeins skal endurhlaða rafhlöðuna með hleðslutækjum sem Nokia hefur
samþykkt til notkunar með þessu tæki. Notkun ósamþykktra hleðslutækja getur
valdið eldhættu, sprengingu, leka eða haft aðra áhættu í för með sér.

Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð í
langan tíma, kann að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja það síðan
og tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið
nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum.

Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það er
ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar
sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt
og smátt ef hún er ekki í notkun.

Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F
að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með
heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa tímabundið. Einkum hefur mikið
frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.

background image

U p p l ý s i n g a r u m r a f h l ö ð u o g

h l e ð s l u t æ k i

17

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Rafhlöður geta einnig
sprungið ef þær skemmast.

Aldrei skal nota skemmt hleðslutæki.

Mikilvægt: Tal- og biðtími rafhlöðu eru áætlaðir og fara eftir gerð tengda
tækisins, aðgerðum sem notaðar eru, aldri og ástandi rafhlöðunnar,
hitastigi og mörgum öðrum þáttum. Lengd símtala hefur áhrif á biðtíma
tækisins. Sömuleiðis hefur það hversu lengi er kveikt á tækinu og biðtími
þess áhrif á taltíma.

background image

U m h i r ð a o g v i ð h a l d

18